Ástæðan fyrir því að ég staulaðist inn Hotel Nordica í gær,
sveitt í lófunum (en samt ekki sko...) var sú að ég átti
að halda þar fyrirlestur, á ensku (hjálp!) um
rannsóknina. Ég var samt búin að ákveða að mér myndi ganga vel og
vera einungis hóflega stressuð, ekki málið.
Mér fannst mjög gaman að sjá hvernig ráðstefnur af þessu tagi
ganga fyrir sér, svo sem að spjalla við spekúlanta, fá risastórt
súkkulaðimuffin í hlénu. Þetta var ágæt reynsla fyrir mig.
Núna er ég hérna á Selfossi í heimsókn hjá foreldrum mínum, og
hvolparnir tveir, Kátur og Pípinn, naga á mér tærnar á meðan ég
skrifa. Litli bróðir minn er að horfa á bíómynd í sjónvarpinu,
alltaf jafn krúttlegur.